Monday, October 24, 2011

Bikarar

Ég játa. Ég er veik fyrir eggjabikurum. Þetta er safnið mitt, eða megnið af því. Þessi í fremri röð fyrir miðju er merktur KRON og þar vann ég einmitt þegar ég var fjórtán-fimmtán ára. Tilviljun? Held ekki.
Ef einhver á eggjabikar sem hann langar ekki að eiga og eggjabikarinn er svalur, óvenjulegur eða óumræðanlega fagur, væri gaman að heyra af því. Kannski getum við býttað, ég á margt eigulegt dót.

Jájá, svo minni ég auðvitað á eigulegt.blogspot.com

4 comments:

  1. Ég skal hugsa til þín við næstu tiltekt í eldhússkápunum mínum - gæti alveg leynst þar eitthvað eigulegt handa þér ;-)

    ReplyDelete
  2. hey ég er með 1 svona gaur sem myndi passa í safnið þitt, hvert á ég að koma með hann?

    ReplyDelete
  3. Takk, takk. Endilega sendið mér póst ef þið eruð með bikara sem þið haldið að ég geti ættleitt, betabaun@gmail.com

    ReplyDelete