Rakst á þennan stórkostlega vasa um daginn hjá Samhjálp. Hann er gamall, danskur og engin smásmíði, 31 sm á hæð. Gæðagripurinn er framleiddur á Fjóni af Ravnild leirgerðinni sálugu, rétt eins og fallega röndótta skálin mín sem er í miklu uppáhaldi. Skálin á sér félaga núorðið, það er lítil kanna sem hún Þórdís gramssystir gaf mér. Fallegt par og elegant.
Varð bara að deila þessu með ykkur. Þakka þeim sem hlýddu.
Þetta er fallegt og parið er sérlega fagurt. Ferðu ekki að setja upp safn?
ReplyDeleteLíklega á ég stærsta safn landsins af þýskum kaldastríðsblómavösum, en það hefur bara eiginlega enginn áhuga á að tala um blómavasa við mig. Svo undarlegt sem það nú er:)
ReplyDeleteKannski gef ég einhverju safni safnið mitt einn góðan veðurdag.