Tuesday, January 17, 2012
Ravnild skál
Þessa skál fann ég í GH og þykir hún falleg. Ég þekkti ekki hvaðan hún var, en það var rifinn miði á botninum, gylltur með einhvers konar kráku og lesa mátti "nild" og "nma". Þetta er eitt af því sem er svo skemmtilegt við munablætið - maður leitar vísbendinga, verður forvitinn og spenntur að vita meira um hlutinn. Eftir nokkra rannsóknarvinnu, með dyggri aðstoð frá munasystur minni Þórdísi, kom í ljós að skálin var framleidd af Ravnild Keramik, leirverkstæði á Fjóni sem starfrækt var á árunum 1949-86. Stofnandi smiðjunnar, Frederik Ravnild (1910-1976), lærði iðn sína hjá Den Kongelige Porcelænsfabrik í Kaupmannahöfn og vann hjá Söholm (á Bornholm) áður en hann stofnaði sína eigin verksmiðju í Óðinsvéum.
Myndirnar gjalda myrkurs við ljós(myndun), en skálin er grængul og svört.
Labels:
skálar
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
skrýtið hvernig hún lítur út fyrir að vera þríhyrnd á hlið en kringlótt að ofan, mjög fallegir litir
ReplyDeleteJá, lögunin er einmitt svo sérstök! Mér finnst þetta svo sjarmerandi gripur:)
ReplyDeleteYndislega falleg og skemmtileg skál.
ReplyDeleteHello :) . Do you still have this dish. I live in Denmark and are looking for some Ravnild to my mother. Wanted to know if it is for sale?
ReplyDelete- Maria