Sunday, May 15, 2011

Búkolla

Í gær brugðum við okkur í bíltúr upp á Skaga til að skoða nytjamarkaðinn Búkollu. Og auðvitað Hvalfjarðargöng, máva, hús og mannlíf í leiðinni. Það var ósköp notalegt að koma í Búkollu, nóg pláss, snyrtilegt og fínt. Þarna var ýmislegt til sölu, slatti af húsgögnum, bókum, plötum og allskonar dóti.

Ég keypti nokkra blómapotta (kækur), leirfíl og svo þetta eggjabikarasett. Bikararnir eru þræddir upp á pinna þannig að notkun settsins þroskar hug og hönd. Þess má einnig geta að það er úr úrvals viði, kannski hnotu. Og vönduðu plasti.
Fílakertastjakinn er algjör krúttbomba.
Ekki verður það sama sagt um þetta plötuumslag. Engum getur þótt þessi náungi krútt. Engum segi ég, ekki einu sinni mömmu Demisar.


Talandi um mömmur og söngvara. Það var dágóður stafli af hljómplötum til sölu í Búkollu á 250 krónur stykkið. Ófáar skífurnar voru með áþrykktum söng Kristjáns nokkurs Jóhannssonar.

Kjarakaup.

7 comments:

  1. Þarf ekkert að horfa, bara hlusta. Á fyrri plötuna.

    ReplyDelete
  2. Öfunda þig að hafa fundið svona sætan fíl!

    ReplyDelete
  3. Kristín í ParísMay 17, 2011 at 6:50 PM

    Mér finnst Demis nú frekar svona sjarmerandi týpa, látt'ekki svona. Og fíllinn er mega og eggjabikararnir líka, gasalega "ludique" og fínir.

    ReplyDelete
  4. Jáenjáen hann er á svipinn eins og hann finni prumpufýlu! Demmi gat alveg sungið þokkalega, það er satt. Skil ekki orðið "ludique" en skal leggjast í rannsóknir.

    Fíllinn er að verða mikill uppáhaldsgripur, hann vex við kynningu:)

    ReplyDelete
  5. Kristín í ParísMay 19, 2011 at 5:48 AM

    Ludique er eiginlega það sama og þroskandi - það er að læra við leik, mér finnst það alltaf mjög skemmtilegt, lærði það við að eignast börn, en það er alltaf verið að mæla með ludique leikföngum eða afþreyingu fyrir þau. Ég tek nú mátulega mark á því hvað sé og hvað sé ekki ludique, en orðið er töff.

    ReplyDelete
  6. Kristín í ParísMay 19, 2011 at 5:49 AM

    Ég viðurkenni að þetta er ekki mjög fallegur svipur, en ímyndaðu þér að grúfa þig ofan í þetta hár og finna kitlið frá skegginu ... (DJÓK!)

    ReplyDelete