Sunday, February 27, 2011

Goggulugú

Við Hjálmar höfum verið að fara í gegnum dót sem fósturmóðir hans átti, en öndvegiskonan Rósa lést 6.janúar síðastliðinn, 93 ára gömul. Eftir að ég kynntist Rósu skildi ég betur hvað það þýðir að vera "ern", en hún var alveg skýr í kollinum fram á síðasta dag. Mér fannst mikið til hennar koma.
LinkMeðal fátæklegra eigna Rósu var þessi bísperrta og hressa hanakanna. Einhvern veginn finnst mér að svona könnur hafi verið til á öðru hverju sveitaheimili fyrir norðan og ímynda mér að farandsali fullur af eldmóði hafi sannfært bændur um ágæti og þénugheit hanans.
Stimpillinn á botni könnunnar er ólæsilegur að mestu, en gaman væri að vita hvort einhver kannist við könnu á borð við þessa.
Neðsta myndin er af Rósu í eldhúsinu á Hraunbraut, þar sem hún bjó í tæp 40 ár. Ef vel er að gáð má sjá hanakönnuna uppi í hillu.

Viðbót 28.2.
Hann Emil hjá Bohemiabloggen benti mér á uppruna hanakönnunar - takk Emil! - en hún er kennd við Ditmar Urbach og búin til í Tékkóslóvakíu heitinni. Mér skilst að þessar könnur hafi verið framleiddar í kringum 1930, en af einhverjum orsökum gekk mér ekki nógu vel í gúggllistinni til að fá nákvæmar upplýsingar. Fann samt fullt af fallegu dóti eftir Ditmar kallinn, t.d. þetta hér.

11 comments:

  1. Indælt. Jú, ég hef oft séð svona könnur en get ómögulega tiltekið staði eða stundir.

    ReplyDelete
  2. Já, þær voru víða þessar könnur, og ábyggilega slatti til af þeim enn.

    ReplyDelete
  3. Eflaust hafa þessar könnur verið til víða, en óþarfi að troða þessari smekkleysu upp á bændur á öðru hverju heimili fyrir norðan.

    ReplyDelete
  4. Mér finnst þetta ljómandi falleg kanna og hef nú fengið það staðfest að hanakönnur hafa verið (og eru) til víða á landinu, alls ekki bara fyrir norðan, enda var það spekúlering hjá mér sem ekki ber að taka bókstaflega.

    ReplyDelete
  5. Neðsta myndin finnst mér einstaklega falleg. Alveg ótrúlega hreint.

    ReplyDelete
  6. Þar er ég sammála, Gunnar.

    ReplyDelete
  7. It's "Ditmar Urbach", Czechoslovakia (if you haven't found out already).

    MvH
    Emil

    ReplyDelete
  8. Thanks Emil, I didn´t know!

    ReplyDelete
  9. Amma á Akureyri átti einmitt svona könnu - velti því fyrir mér núna hvar hún hafi lent?

    ReplyDelete
  10. Ég held í alvöru að það hljóti að hafa trallað hér um landið firna duglegur sölumaður á fyrrihluta síðustu aldar, með vörubílshlass af þessum könnum, því ég er búin að heyra í svo ótalmörgum sem muna eftir þeim:)

    ReplyDelete
  11. Kristín í ParísMarch 1, 2011 at 12:48 PM

    Ja hérna hvað ég er hrifin af honum Ditmar.

    ReplyDelete