Thursday, March 22, 2012
Föndurhornið
Fann gamlan og grúví lampa hjá Samhjálp um daginn (kr. 800). Hann var grútskítugur og bastið á skerminum tætt og slitið. Ég fór í föndurbúð og keypti þrjár fagurgular bastdokkur (kr. 1500) og vafði bastinu utan um skermgrindina, það gekk furðu vel miðað við að ég er ég. Síðan þreif ég lampann og rafvirki heimilisins rafvirkjaðist.
Árangurinn má sjá á myndunum. Lampinn hangir nú hinn rólegasti og bíður sófasettsins sem bráðum kemur heim.
Fylgist með, fylgist spennt með.
Labels:
lampar
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
næs mamma
ReplyDeleteSeisei, þér er ekki alls varnað þó að þú sért þú: Ekkert víst að betur gengi ef þú værir annar.
ReplyDeleteFlott!
ReplyDeleteFrábært! Nú langar mig að föndra :)
ReplyDeleteAð föndra getur verið góð skemmtun:)
ReplyDeletenæs, dóttir! ;)
ReplyDelete