Í gramsæðinu í dag stökk hanaparið sem sjá má á myndinni oní körfuna hjá mér. Fyglin þóttust eitthvað merkileg, sögðust vera þungavigtarhanar úr fínum málmi. Þegar ég fór að rannasaka málið kom í ljós að þetta eru nauða algengir túristahanar sem eiga sér samt sem áður býsna áhugaverða sögu. Galo de Barcelos kallast þessi litríki hani í Portúgal og ef maður fer með slíkan úr landi á það að bera manni gæfu. Vonandi að sá sem losaði sig við hanana í Góða hirðinn sitji ekki eftir gæfusnauður.
Tuesday, April 26, 2011
Við fyrsta portúgal

Labels:
kertastjakar,
málmur,
ýmislegt
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Fátt toppar sænska smíðisgripi. Í fyrra gekk ég alla leið heim úr Góða hirðinum með stórar trjáklippur. Ég sveiflaði þeim eins og handrukkari í vígahug og hef klippt margar greinar með þeim. Í dag keypti ég hins vegar lampa úr IKEA sem mig vantaði, hann kostaði 200 krónur en kostar 3000 í IKEA. Talandi um hagsýni!
ReplyDeleteJá, prumpum á auðvaldið!
ReplyDeleteSætt af þeim að drösla gæfunni alla leið frá Portúgal áleiðis til þín. Vorkenni þér ekkert að þurfa að taka lokaskrefin.
ReplyDeleteSatt er það:)
ReplyDeleteFallegt par þetta...hugsaði fyrst að þetta væru karl og kerling sem endurspeglaðist í hinum hefðbundna stærðarmun - en svo poppaði upp teiknimyndabóla í huganum og í henn stóð: Hanar eru karlkyns, doh! Sem sagt fallegt hommapar!
ReplyDeleteJá, parið er myndarlegt, og kemur kynhneigð þar hvergi nærri:)
ReplyDelete