Monday, March 21, 2011
Grænbaunagleði
Hann er kominn. Pakkinn sem ég hef beðið eftir. Loksins. Grænu baunirnar mínar fjórar. Allar við góða heilsu, hamingja hamingja...
Kertastjakarnir eru úr (dásamlega) grænu gleri og látúni (eða kopar, er ekki viss). Samkvæmt merkingu eru þeir búnir til í Svíþjóð og væri gaman að vita nánari deili á þeim, en það er ekki mikið að græða á miðanum bláa.
Kannski get ég notað stjakana sem óhefðbundinn aðventukrans, hver veit?
Viðbót: Fékk ábendingu frá þessum fínu bloggurum um að kertastjakarnir væru framleiddir af Lindshammar - Gunnar Ander, sjá mynd hér (það þarf að skruna svolítið niður til að sjá stjakana).
Labels:
gler,
kertastjakar
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Fagrir eru þeir. How much?
ReplyDeleteÞeir kostuðu $20 og svo þurfti ég að borga flutning og toll, vask og eitthvað sem nefnist tollmeðferðargjald. Samtals lagði þetta sig á 6 þúsund kall, sem er svakalega dýrt en...hjól atvinnulífsins og allt það...
ReplyDeleteVÁ! Til hamingju, þeir eru æðislegir.
ReplyDeleteMeiriháttar fínir.
ReplyDeleteGrænar baunir! Viðeigandi :) Aldeilis krúttlegar :)
ReplyDeleteÞeir eru alveg rosalega fallegir!
ReplyDeleteJag har sett likadana med en etikett från Lindshammar glasbruk i Sverige. Fina.
ReplyDeleteHär hittade jag bilden på ljusstakarna.
ReplyDeletehttp://precisensan.com/antikforum/showthread.php?1195-Mannen-bakom-det-Obekanta-Gunnar-Ander&p=15186&viewfull=1#post15186
Takk AL!
ReplyDeleteVá! Mikið eru þeir dásamlegir.
ReplyDeleteÓ, hvað þeir eru fallegir.
ReplyDeleteSmart að hlaða þeim svona ofan á hvern annan líka ;)
ReplyDelete